Heimsmet Skagstrendinga
Á vef Skagastrandar eru birtar skemmtilegar gamlar myndir í þættinum „Mynd vikunnar.“ Þessa vikuna er það mynd frá heimilissýningu í Laugardalshöll og henni fylgir sú saga að þar hafi starfsmenn Marska á Skagaströnd sett heimsmet. Bökuðu þeir stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlacius, fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi.
Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu tæplega sjö þúsund manns á henni. Steindór R. Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska á þessum tíma áætlar að hægt hefði verið að gefa um 20 þúsund manns að smakka því skammtarnir sem voru gefnir voru einungis um þriðjungur af pizzunni allri. Á myndinni sést í bakið á Ragnari frá Ragnarsbakaríi sem bjó til botninn í pizzuna og forbakaði hann. Steindór er einnig að myndinni og fylgist með aðstoðarmönnum sínum úr kokkalandsliðinu dreifa álegginu fyrir pizzuna, sem var rækja og skelfiskur ásamt sósu og fleiru sem Steindór útbjó. Á vefnum segir að þetta sé líklega eina heimsmetið sem Skagstrendingar eiga.