Heimsókn í FNV vegna EXITED-verkefnisins
Málmiðnaðardeild FNV á Sauðarkróki er þátttakandi í Evrópuverkefninu EXITED (Explore Creativity and Innovation in Technology, Entrepreneurship and Design) ásamt sex öðrum skólum frá Noregi, Danmörk, Þýskalandi, Belgíu og Tékklandi. Verkefnið gengur út á samstarf í hönnun og smíði á færibandi sem 3 róbótar mata inn á.
Dagana 14. til 17. september komu þátttakendur frá þessum skólum til fundar í FNV þar sem allir hittust og fóru yfir stöðu verkefnisins og til að þróa verkefnið áfram. Á heimasíðu FNV segir að skólinn hafi fengið á fjórðu milljón í styrk frá Comenius-sjóðnum í verkefnið.
Heimasíða verkefnisins er: http://www.comenius-excited.eu
Sagt verður frekar frá verkefninu í næsta Feyki.