Heitavatnslaust á Blönduósi og í Húnavatnshreppi

Vegna tenginga nýrrar aðveituæðar frá Reykjum til Blönduóss er heitavatnslaust á Blönduósi og í Húnavatnshreppi í dag en búist er við að það komi á aftur um kvöldmatarleytið. Nokkuð rask verður á meðan tengingu stendur en m.a. fellur allt skólahald niður í grunn- og leikskólanum á Húnavöllum.

Með komu nýju aðveituæðarinnar verður sú gamla aflög. Á Húna.is segir: „Með nýju aðveituæðinni hækkar hitastig vatnsins á Blönduósi um 10 gráður og verður allt að 70 gráður inn í bæinn en í dreifbýli hækkar hitastigið mismikið eftir stöðum. Þrýstingurinn á vatninu í bæjarkerfinu verður hækkaður um 1,5 bær vegna þess að hann hefur verið heldur lágur. Hækkunin hefur engar breytingar í för með sér hjá viðskiptavinum.“

Fleiri fréttir