„Heitum ekki bara „Samstaða“ heldur „SAMSTAÐA - flokkur lýðræðis og velferðar“

Lilja Mósesdóttir hefur svarað athugasemdum Stéttarfélagsins Samstöðu varðandi nafngift hins nýja stjórnmálaafls og segir hörð viðbrögð Stéttarfélagsins koma henni á óvart í ljósi þess að átta félög hafa verið skráð í fyrirtækjaskrá undir nafninu, Samstaða.

„Eitt af þessum 8 félögum var stjórnmálaafl á landsvísu sem breytti nafni sínu úr „Samstaða – þjóðarflokkur“ í „Þjóðarflokkur – Samstaða“ til að við gætum skýrt stjórnmálaflokkinn okkar „SAMSTAÐA  - flokkur lýðræðis og velferðar“. Ég velti því fyrir mér hvort þú hafir fyrir hönd félags þíns gert athugasemd við nafngift þessara félaga á sínum tíma?“ svarar Lilja.

Við stofnun flokksins fengust þær upplýsingar frá embætti Ríkisskattstjóra að enginn hafi einkarétt á orðinu samstaða. „Auk þess heitum við ekki bara „Samstaða“ heldur „SAMSTAÐA  - flokkur lýðræðis og velferðar“ og því gerði RSK ekki athugasemd við skráninguna,“ segir Lilja.

„Við munum héðan í frá leitast við nota sjálf alltaf fullt nafn stjórnmálaflokks okkar, enda leggjum við mikla áherslu á að flokkurinn berjist fyrir lýðræði og öflugu velferðarkerfi. Hvernig aðrir fara með nafn stjórnmálaflokks okkar s.s. fjölmiðlar getum við ekki stjórnað eins og gefur að skilja,“ bætir Lilja loks við.

Í febrúarmánuði mun Samstaða - flokkur lýðræðis og velferðar halda kynningarfundi á Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri og Ísafirði. Í mars og apríl verður stefnan tekin á aðra staði á landsbyggðinni, þar á meðal á Norðurlandi vestra.

 

Fleiri fréttir