Heldur hefur hægst á veiði í Blöndu
Samkvæmt nýjum tölum frá Landssambandi veiðifélaga frá 20. júlí, hafa 1492 laxar bitið á agnið það sem af er sumri. Undanfarið hefur þó hægst á laxveiðinni í Blöndu. Frá því er sagt á Húnahorninu.
Í síðustu viku veiddust 192 laxar á meðan 280 laxar enduðu á þurru landi vikuna á undan. Þá er Miðfjarðará komin í 1459 laxa en sá frábæri árangur náðist þar í síðustu viku að 382 laxar veiddust. Þá hafa 425 laxar veiðst í Víðidalsá og 338 í Vatnsdalsá. Alls hafa 225 laxar veiðst í Laxá á Ásum.