Helga himneska stjarna, jólalag Steins Kárasonar og Sigurbjörns Einarssonar

Helga himneska stjarna, jólalag Steins Kárasonar og Sigurbjörns Einarssonar er nú aðgengilegt og myndskreytt á youtube.com. Þetta fallega lag sem er í sérstökum hátíðarbúningi er í flutningi Scola cantorum og félaga úr Kammersveit Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson en Atli Heimir Sveinsson útsetti. Lagið samdi Steinn á Sauðárkróki, aðfangadagskvöld er hann var 15 ára en síðar gerði hann þó smávægilegar breytingar á því.

Upptökur fóru fram í Hallgrímskirkju í Reykjavík skömmu fyrir jólin 2006 og var lagið þá gefið út á hljómdisk í takmörkuðu upplagi. Á þeim disk er Helga himneska stjarna einnig sungið af Hrólfi Sæmundssyni bariton við undirleik Steingríms Þórhallssonar á orgel Neskirkju.

Myndirnar á myndbandinu voru m.a. teknar í Hallgrímskirkju meðan upptakan var gerð og á heimili Sigurbjörns heitins Einarssonar biskups. Sumar myndanna hafa ekki birst opinberlega áður. Upptöku í Hallgrímskirkju annaðist Sveinn Kjartansson en Eiríkur Hilmisson í Neskirkju.

Kór Dómkirkjunnar frumflutti lagið í messu í Dómkirkjunni sunnudaginn 13. júní 2004 undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar organista í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar. Kórinn söng þá „vinargjöf“ í stað „jólagjöf“ eins og skrifað er í ljóðinu. Dr. Sigurbjörn var þá í Dómkirkjunni ásamt eiginkonu sinni. Sálmurinn var svo frumfluttur í útvarpi annan dag jóla 2004 í morgunþætti Margrétar Blöndal á Rás 2. Lagið hefur m.a. verið flutt á aðfangadagskvöld í Neskirkju í Reykjavík, sungið af Hrólfi Sæmundssyni, í Sauðárkrókskirkju, sungið af Þorbergi Jósepssyni og einnig hefur lagið verið flutt af Kammerkór Hafnarfjarðar í Hafnarfirði og af kórum og söngfólki víða um land.

Áhugasamir geta nálgast diskinn með því að hafa samband við steinn@steinn.is

https://www.youtube.com/watch?v=C9lhrskagBk

 

Fleiri fréttir