Helgi Hjörvar formaður þingflokks Samfylkingarinnar

Helgi Hjörvar, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Suður, var kosinn formaður þingflokks Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands  á þingflokksfundi í gær. Með Helga voru kosin í stjórn þingflokksins þau Oddný G Harðardóttir, 6. þingmaður Suðurkjördæmis, sem var kosin varaformaður og Kristján L. Möller, 7. þingmaður Norðausturkjördæmis, sem var kosinn ritari.

Helgi hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum á tíu ára þingferli sínum sem þingmaður Reykvíkinga, gegndi embætti formanns  efnahags- og viðskiptanefndar frá 2011 og var þar áður formaður efnahags- og skattanefndar. Oddný tók sæti á þingi 2009, gegndi embætti formanns fjárlaganefndar, var þingflokksformaður og gegndi embætti fjármála- og efnahagsráðherra. Kristján hefur setið á þingi síðan 1999, gegndi embætti Samgöngu- og  sveitarstjórnarráðherra og var formaður atvinnuveganefndar á síðasta kjörtímabili.

Fleiri fréttir