Herrakvöld og sviðamessa
Lionsklúbbur Blönduóss ætlar föstudagskvöldið 11.11.11 að halda herrakvöld í Félagsheimilinu á Blönduósi með yfirskriftinni Sviðamessa. Veislustjórar verða þeir Jón Hallur Ingólfsson og Gunnar Rögnvaldsson en ræðumaður kvöldsins verður Stefán Vilhjálmsson.
Í tilkynningu frá klúbbnum eru áhugasamir karlar hvattir til að skrá sig í síma 860-0054 (Sigurjón), 848-0037 (Auðunn) og 844-5288 (Kári) og er aðgangseyrir kr. 4.000.