Hestaíþróttir á Norðurlandi sjónvarpaðar á Stöð 2 Sport
Skottafilm hefur gert samning við 365 miðla um framleiðslu á sjö þáttum um hestaíþróttir á Norðurlandi í vetur og verða þeir til sýningar á Stöð 2 Sport á hálfsmánaðar fresti fram í apríl. Fyrsti þátturinn verður sýndur í kvöld kl. 21:30.
Þáttur kvöldsins fjallar um Meistaradeild Norðurlands, KS deildina, en að sögn Árna Gunnarssonar hjá Skottafilm munu fimm þættir fjalla um KS deildina en þar mætast sterkustu knaparnir og bestu hestarnir á Norðurlandi. Einnig verður Opna Bautamótið í tölti, sem verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri, og Ístöltmótið á Svínavatni til umfjöllunar í þáttaröðinni.
Stöð 2 Sport mun sýna frá 21 þætti um hestaíþróttir í vetur; 14 fjalla um hestaíþróttir á Suðurlandi og sjö á Norðurlandi. „Ég vil hvetja fólk til að vera duglegt að mæta í reiðhöllina og hvetja sitt lið áfram. Það er mikilvægt að sýna hve mikill áhugi er fyrir íþróttinni hér fyrir norðan,“ sagði Árni í samtali við Feyki.