Hestamenn ósáttir við auknar álögur
Hestaeigendafélagið á Blönduósi afhenti í gær bæjarráði ályktun þar sem félagið harmar að bæjaryfirvöld á Blönduósi skuli hafa séð sig knúinn til að fara að úrskurði yfirfasteignamatsnefndar vegna álagningar fasteignagjalda 2011. Heppilegra hefði verið að málið hefði verið kynnt og hesthúsaeigendur getað undirbúið sig fyrir þessa breytingu.
Í ályktun frá félaginu segir jafnframt að þessi breyting komi á sama tíma og sorpgjald hafi hækkað um næstum 50% og landleiga hækkað um 10%. Mótmæla hestamenn þessum stórauknu álögum og skora á bæjaryfirvöld að hverfa frá þessum auknu álögum eða draga úr þeim með einhverjum hætti og benda á að ekki hafa öll sveitarfélög talið sér skylt að innleiða þessar breytingar strax
Þá voru bæjaryfirvöld hvött til þess að undirbúa nú þegar að hrinda í framkvæmd á sumri komandi það mat á landi sem lofað var af bæjarstjórn þann 27.05.2008. Allir eru sammála um að óeðlilegt sé að greiða sama fermetraverð fyrir ræktað land annars vegar og örfoka mel eða moldarflag hins vegar
Var bæjarstjóra falið að vinna að undirbúningi mats á beitarhólfum í sveitarfélaginu. Afgreiðslu annarra atriða í ályktun frestað til næsta fundar.