Hildur Sif Thorarensen leiðir lista pírata í Norðvesturkjördæmi
Frumúrslit prófkjörs Pírata í Norðaustur-, Norðvestur- og Suðurkjördæmi hafa verið gerð kunn en á miðnætti aðfararnótt laugardags lauk prófkjöri Pírata í kjördæmunum þremur utan höfuðborgarsvæðisins, sem er mikið fagnaðarefni að sögn pírata. Fimm efstu sætin á framboðslistum Pírata skipa:
Norðvestur:
- 1. Hildur Sif Thorarensen
- 2. Herbert Snorrason
- 3. Guðrún Ágústa Þórdísardóttir
- 4. Stefán Vignir Skarphéðinsson
- 5. Tómas Árni Jónasson
Norðaustur:
- 1. Aðalheiður Ámundadóttir
- 2. Þórgnýr Thoroddsen
- 3. Helgi Laxdal
- 4. Kristín Elfa Guðnadóttir
- 5. Bjarki Sigursveinsson
Suður:
- 1. Smári McCarthy
- 2. Halldór Berg Harðarson
- 3. Björn Þór Jóhannesson
- 4. Svafar Helgason
- 5. Ágústa Erlingsdóttir
"Við erum afar ánægð með framkvæmd kosninganna og þátttökuna, en um 25 % skráðra félagsmanna tóku þátt í þessum kosningum sem er svipað þáttökuhlutfall og í kosningunum í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvestur," segir Eva Lind Þuríðardóttir, Pírati.