Hin árlega Ábæjarmessa í dag
feykir.is
Skagafjörður, Fréttir
01.08.2021
kl. 10.11
Hinn árlega Ábæjarmessa fer fram í dag, sunnudaginn 1. ágúst, í Ábæjarkirkju í Austurdal, klukkan 14:00.
Það mun vera séra Gísli Gunnarsson sem messar ásamt því að Bjarni Maronsson flytur ræðu og Stefán R. Gíslason leikur undir almennan safnaðarsöng.
Ekki verða kaffiveitingar í Merkigili að þessu sinni en á Fésbókarsíðu Kirkjunnar í Skagafirði er fólk hvatt til að taka með sér nesti til að neyta utandyra í faðmi fjallanna að messu lokinni.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.