Hitaveituframkvæmdir á Skagaströnd
Framkvæmdir við hitaveitu á Skagaströnd standa nú sem hæst og er reiknað með að þeim ljúki á þessu hausti. Samhliða hitaveitunni er lagður ljósleiðari í öll hús á Skagaströnd. Blaðamaður Feykis smellti af meðfylgjandi myndum, á leið sinni um Skagaströnd síðastliðinn föstudag.
Eins og myndirnar gefa til kynna fylgir framkvæmdunum töluvert rask, og þarna var .t.a.m. búið að loka götunni þar sem ekið er inn í bæinn við félagsheimilið Fellsborg og var umferðinni beint um bílastæði félagsheimilisins á meðan. Hvert sem litið er má sjá skurði og menn að störfum í skurðunum eða á vinnuvélum.
Eins og greint hefur verið frá á vef Feykis hófust framkvæmdir á síðasta ári, þegar stofnæð Hitaveitu Blönduóss frá Reykjum var endurnýjuð. Í framhaldi af því er nú hafin lagning nýrrar stofnæðar frá Blönduósi, sem endar í dreifikerfi innanbæjar á Skagaströnd, auk þess sem vinna við dreifikerfið er í fullum gangi. Áætlað er að allar þessar framkvæmdir kosti 1,2 milljarða króna. Á Skagaströnd eru hús kynt með rafmagni og horfa menn því bjartsýnir til hituveitunnar.
.