Hjallastefnan innleidd í skólana á Skagaströnd?

Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar í síðustu viku var samþykkt að hefja undirbúning að viljayfirlýsingu milli sveitarfélagsins og Hjallastefnunnar um samstarf um leikskóla og síðar grunnskóla.

Ákvað sveitarstjórn að halda samráðsfund um áhuga sveitarstjórnar með fræðslustjóra, skólastjórnendum, fræðslunefnd, fulltrúum foreldra, starfsmönnum skólanna og forsvarsmönnum Skagabyggðar.

Nánari upplýsingar um Hjallastefnuna er að finna á www.hjalli.is.

 

Fleiri fréttir