„Hjálp... hundur gefins“
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
23.09.2011
kl. 11.38
„Hjálp... hundur gefins,“ er fyrirsögn einnar auglýsingar á smáauglýsingarvef Feykis.is en vefurinn er komin á fullt skrið eftir sumarleyfi.
Þar finna ýmsar auglýsingar og má þar nefna t.d. íbúðir til leigu, geymsluhúsnæði, bílar, húsgögn og gæludýr, eins og fyrrgreindur ársgamli border collie hundur.
Allir eru hvattir til að líta við og athuga hvort þeir finna eitthvað við sitt hæfi.