Hjólað í vinnuna fer af stað í dag

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna dagana 6. – 26. maí, í þrettánda sinn. Í fréttatilkynningu segir að landsmenn hafa tekið góðan þátt í verkefninu og mikil aukning hefur orðið á þátttakendum á milli ára. Hjólað í vinnuna snýst um að vekja athygli virkum ferðamáta og heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.

Samkvæmt fréttatilkynningu verður setningarhátíð verkefnisins þann 6. maí næstkomandi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík. Eftir hana munu þáttakendur hjóla átakið formlega af stað.

Þegar þáttakendur skrá sig til leiks eiga þeir möguleika á því að vinna glæsilega vinninga frá Erninum, og þar ber að nefna hjól að verðmæti 100.000 kr. Dregið verður út í Popplandi á Rás 2.
Einnig eru þátttakendur hvattir til að taka skemmtilegar myndir af þátttöku sinni í verkefninu og merkja myndina með #hjoladivinnuna og með því gætu nokkrir heppnir unnið kreditkort með 25.000 kr inneign frá Valitor. Það er því til mikils að vinna.

Vinnustaðir eru hvattir til að taka þátt og skrá liðið sitt en skráning er þegar hafin á http://www.hjoladivinnuna.is/ 

 

Fleiri fréttir