Hlaupanámskeið á Blönduósi
Á Blönduósi mun hefjast hlaupanámskeið sunnudaginn 9. júní 2013 ef næg þáttaka fæst. Torfi H. Leifsson hjá hlaup.is ætlar að koma og vera með námskeiðið.
Þessi námskeið hafa verið mjög vinsæl og þeir sem hafa tekið þátt verið mjög ánægðir. Áætlað er að byrja um kl. 9:30 að morgni og enda um kl. 18:30. Námskeiðið er að mestu byggt upp á fyrirlestrum en verklegar æfingar verða í lok dags. Farið verður í ýmis praktísk atriði eins og útbúnað, mataræði, styrktaræfingar, teygjur og fleira.
Áhugasamir geta aflað sér frekari upplýsinga á hlaup.is.
Námskeiðið er ætlað bæði byrjendum og þeim sem hafa verið að hlaupa en vilja fá ráðleggingar. Skráning er hafin hjá Ásdísi Arinbjarnardóttur í síma 690-3243 eða á facebook. Síðan heitir Nafnlausi skokkhópurinn. Síðasti dagur skráningar er mánudaginn 3. júní. Skagaströnd segir frá þessu.