Hlaupið umhverfis Blöndu
Hið árlega Blönduhlaup verður haldið á Húnavöku um helgina nánar tiltekið laugardaginn 21. júlí og hefst klukkan 11. Samkvæmt Húna.is verður hlaupið bæði á götum og stígum umhverfis Blöndu og hefst á planinu fyrir framan Félagsheimilið á Blönduósi og endar einnig þar. Það er Ungmennasamband Austur-Húnvetninga sem stendur fyrir Blönduhlaupinu.
Aldursflokkaskipting og vegalengdir, bæði kyn:
· 2,5 km: 12 ára og yngri (skemmtiskokk er í boði fyrir alla aldurshópa, en verðlaunapeningar bara fyrir 12 ára og yngri)
· 5 km: 15 ára og yngri, 16 ára og eldri.
· 10 km: 29 ára og yngri 30-39 ára, 40-49 ára og 50 ára og eldri.
Tímataka verður í öllum vegalengdum og allir keppendur hefja keppni samtímis.
Sjá nánar á Húni.is.