Hlíðarkaup hlaut Hvatningarverðlaun SSNV

Verslunin Hlíðarkaup á Sauðárkróki hlaut fyrr í dag Hvatningarverðlaun SSNV atvinnuþróunar á Degi atvinnulífsins á Norðurlandi vestra sem haldinn var á Kaffi Krók. Hvatningarverðlaunin eru í senn viðurkenning fyrir góðan árangur og  hvatning til áframhaldandi starfsemi viðkomandi fyrirtækis.

 

 

Markmið verðlaunanna er að hvetja til nýsköpunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra og voru fimm fyrirtæki í Skagafirði tilnefnd til þeirra; Feykir, héraðsfréttablað og vefmiðill,  Hótel Varmahlíð, Kaupfélag Skagfirðinga, Videosport og Hlíðarkaup.

Verslunin Hlíðarkaup á 20 ára afmæli á þessu ári.  Eigendur hafa staðið fyrir traustum rekstri og er verslunin þekkt fyrir góða og metnaðarfulla þjónustu. Þannig býður Hlíðarkaup t.d. upp á fjölbreytt vöruúrval, heimsendingaþjónustu og vinnur á staðnum ýmsar þær kjötvörur og tilbúna rétti sem seldir eru í versluninni.  Nýlega bætti fyrirtækið við myndbandaleigu.  Samstarf við Ferðaþjónustuna á Hólum leiddi af sér að nú rekur ferðaþjónustan litla verslun þar og hefur þjónusta við íbúa og gesti á Hólastað styrkst mjög.  Langur opnunartími hjá Hlíðarkaup á Sauðárkróki leiðir af sér hærra þjónustustig í nágrenninu.  Þjónustu- og verðkannanir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum sýna að verslunin er fyllilega samkeppnisfær.  Verslunin tekur þátt í verkefninu Retail in Rural Regions og hefur náð prýðisgóðum árangri þar.

Verðlaunagripurinn að þessu sinni sýnir ávöxt erfiðisins og er unninn af Guðbrandi Ægi Ásbjörnssyni, listamanni á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir