Hljómsveitin Von spilar á Styrktarsjóðsballi Húnvetninga

Styrktarsjóður Húnvetninga mun halda sitt árlega ball í Félagsheimilinu á Blönduósi, laugardaginn 22. október nk. Hljómsveitin Von mun leika fyrir dansi og nú er tækifæri til að styrkja góð málefni og skemmta sér um leið.

Styrktarsjóður Húnvetninga var stofnaður árið 1974 með samstilltu átaki nokkurra félaga á Blönduósi og nágrenni, er kemur fram á Húni.is. Núverandi aðilar sjóðsins eru:  Leikfélag Blönduóss, Björgunarfélagið Blanda, Stéttarfélagið Samstaða,  Lionsklúbbur Blönduóss, Kvenfélagið Vaka, Ungmennafélagið Hvöt, Samkórinn Björk og  Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps.

Sjóðurinn aflar fjármuna með því að efna til samkoma, eins og hið árlega Styrktarsjóðsball sem verður 22. október nk., og þá gefa öll aðildarfélög vinnu sína. Einnig byggist hann á frjálsum framlögum einstaklinga og félaga en þó ekki með félagsgjöldum.

Tilgangur sjóðsins er að veita héraðsbúum hjálp þegar óvænta erfiðleika ber að höndum, sérlega ef um erfið sjúkdómstilfelli er að ræða. Sömuleiðis ef festa þarf kaup á lækningatækjum og öðrum tækjum eða aðstöðu sem skapa bætta sjúkrahjálp og heilsugæslu í héraði.

 

 

 

Fleiri fréttir