Hlutfall nemenda sem sækja skóla í meira en 30 km fjarlægð frá heimili sínu hæst á Norðurlandi vestra

Strætóstopp í Varmahlíð. Mynd: KSE.
Strætóstopp í Varmahlíð. Mynd: KSE.

Á  heimasíðu SSNV er vakin athygli á nýútkominni skýrslu Byggðastofnunar, Vinnu- og skólasóknarsvæði og almenningssamgöngur, sem unnin var af Byggðastofnun fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Í skýrslunni er að finna áhugaverðar upplýsingar um stöðu þessara mála um land allt, ekki síst á Norðurlandi vestra.

Í færslu samtakanna segir að ef litið er til Norðurlands vestra megi sjá að þar er hæsta hlutfall nemenda sem sækja skóla í meira en 30 km. fjarlægð frá heimili sínu, eða 8,5% og að heildar skólaakstur dag hvern er næst mestur á Norðurlandi vestra á eftir Suðurlandi eða 1043 km önnur leið.

„Af þeirri vegalengd eru 285 km á malarvegum sem er það mesta á skólaakstursleiðum á landinu öllu. Jafnframt eru í landshlutanum flestar einbreiðar brýr á þessum mikilvægu leiðum, eða 49. Það er því verk að vinna í landshlutanum í samgöngumálum með tilliti til skólaaksturs eins og ítrekað hefur verið bent á, m.a. í umsögnum SSNV um samgönguáætlanir sem og í gildandi samgönguáætlun landshlutans sem út kom árið 2019. Nú stendur yfir vinna við endurskoðun áætlunarinnar og mun skýrsla Byggðastofnunar koma að góðum notum við þá vinnu,“ segir á ssnv.is.

Í skýrslu Byggðastofnunar kemur fram að ferðir með Strætó henti illa til að sækja vinnu og skóla á milli þéttbýlisstaða á vinnusóknarsvæði á Norðurlandi vestra og má draga þá ályktun að af þeim sökum hafi flestir ferðast með einkabíl til og frá vinnu á milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi vestra. Til að mæta þörfum íbúanna þyrftu að vera tíðari ferðir almenningsvagna á milli þéttbýlisstaða og betra aðgengi. „Byggja þarf upp stæði þar sem almenningsvagnar stoppa s.s. við Hvammstangavegamót og við Blönduós. Byggja þarf plan við vegamót Þverárfjallsvegar og Skagastrandarvegar,“ segir í skýrslu Byggðastofnunar.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir