Hlýtt í veðri næstu daga

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er austan 8-13 m/s og rigning eða slydda með köflum. Hiti 1 til 8 stig. Víða eru hálkublettir eða hálka á vegum. Þá má búast við umferðatöfum í Strákagöngum vegna vinnu við endurbætur á rafkerfi. Vegfarendur eru beðnir að sýna tillitssemi og virða hraðatakmarkanir.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Suðvestan 10-18 m/s og rigning eða slydda, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 1 til 6 stig.
Á sunnudag:
Sunnan- og suðaustan 13-20 m/s og rigning, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 3 til 8 stig.
Á mánudag:
Sunnanátt með rigningu og síðar skúrum eða éljum sunnan- og vestantil á landinu. Kólnandi veður.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðlæg átt og él, en lengst af þurrt og bjart veður á Norður- og Austurlandi. Frost 0 til 8 stig.
Á fimmtudag:
Vestlæg átt, él og fremur kalt.