Hlýtt og hvasst

Spáð er austlægri eða breytilegri átt, 3-8 m/s, á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag. Yfirleitt léttskýjað en þokubakkar á annesjum í nótt. Bæti í vind um tíma í kvöld. Hiti 9 til 19 stig, hlýjast inn til landsins.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:

Austlæg átt, 8-13 m/s með S-ströndinni, en annars 3-8. Skýjað með köflum eða léttskýjað, en dálítil væta S og A-lands. Hiti 14 til 21 stig N- og V-lands, en annars 8 til 13 stig.

Á sunnudag og mánudag:

Austan 5-13 m/s og þokusúld eða rigning S- og A-lands, en annars skýjað með köflum. Hiti 8 til 19 stig, hlýjast V-lands.

Á þriðjudag:

Austlæg átt, 3-10 m/s. Víða skýjað með köflum en súld við S- og A-ströndina og síðdegisskúrir V-til . Hiti 10 til 17 stig, hlýjast V-lands.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir fremur hvassa austanátt með vætu víða um land en áfram milt í veðri.

Á fimmtudag:

Snýst í suðaustlæga átt, styttir upp og léttir víða til. Heldur hlýnandi.

Fleiri fréttir