Höfðingleg gjöf frá Hrútey ehf.

Frá vinstri: Ásdís Arinbjarnardóttir, Rannveig Lena Gísladóttir, Gísli 
Jóhannes Grímsson, Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir, Helga M. 
Sigurjónsdóttir og Guðmundur Finnbogason. Mynd: Húni.is.
Frá vinstri: Ásdís Arinbjarnardóttir, Rannveig Lena Gísladóttir, Gísli Jóhannes Grímsson, Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir, Helga M. Sigurjónsdóttir og Guðmundur Finnbogason. Mynd: Húni.is.

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Blönduósi fengu sl. fimmtudag afhenta höfðinglega gjöf frá Hrútey ehf. Gjöfin er til minningar um Höllu Jökulsdóttur frá Núpi sem lést 16. september síðastliðinn.

Gísli Jóhannes Grímsson, eftirlifandi eiginmaður Höllu og Rannveig Lena Gísladóttir, dóttir þeirra Gísla og Höllu, færðu Hollvinasamtökunum og Heilbrigðisstofnuninni gjafabréf að verðmæti 360.000 sem varið hefur verið til kaupa á nýju sjúkrarúmi fyrir stofnunina. Gjöfin var afhent fyrir hönd Gísla, barna þeirra Höllu, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarns.

 

Fleiri fréttir