Hólahátíð hefst í kvöld
Árleg Hólahátíð á Hólum í Hjaltadal hefst í kvöld kl. 20:00 í Auðunarstofu með fyrirlestri Ragnheiðar Þórsdóttur um vefnað. Hátíðin í ár markast af því að á sunnudeginum verður vígður nýr Hólabiskup en Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, vígir þá séra Solveigu Láru Guðmundsdóttur til embættis.
Á Hólahátíð gefst tækifæri til að taka þátt í helgihaldi, fræðsludagskrá og til að hreyfa sig og kynnast um leið gömlum þjóðleiðum, sem pílagrímar fóru á leið sinni heim að Hólum eða í ár sögulegri leið sem sjaldan er farin, taka þátt í helgihaldi og fá fylgd góðra leiðsögumanna og fararstjóra.