Hollvinasamtök HSB fá peningagjöf
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
26.04.2017
kl. 09.13
Nýlega barst Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi peningagjöf að upphæð 50.000 kr. frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps. Gjöfin er ætluð til uppbyggingar á aðstandendaherbergi á HSN á Blönduósi, til minningar um Sigurstein Guðmundsson, fyrrv. yfirlækni stofnunarinnar en eins og áður hefur komið fram standa hollvinasamtökin nú fyrir söfnun til þess að útbúa aðstöðu fyrir aðstandendur sjúklinga á HSB.
Á myndinni eru þau Sigríður Stefánsdóttir, Guðmundur Finnbogason, Guðrún Sigurjónsdóttir, Sigurlaug Þ. Hermannsdóttir, Kári Kárason og Jóhann Guðmundsson. Mynd: Húni.is