Hólmar Örn á HM og N4

Sjónvarpsstöðin N4 beinir linsunum að landsliðsmönnum frá landsbyggðunum í nýjum þætti sem hefst fimmtudaginn 14. júní þar sem fjallað verður um þá landsliðsstráka frá landsbyggðunum sem komust í lokahóp HM í Rússlandi. Hólmar Örn Eyjólfsson er þar tengdur við Sauðárkrók enda foreldrarnir báðir þaðan.

Þættirnir verða alls fjórir og í hverjum þeirra verða tveir landsliðsmenn teknir fyrir. Umsjónarmenn eru þeir Skúli Bragi Magnússon dagskrárgerðarmaður og Árni Rúnar Hrólfsson kvikmyndatökumaður.

„Við fáum að kynnast strákunum með augum bæjarfélagsins þaðan sem þeir koma. Foreldrar, ömmur og afar, bræður og systur, vinir og þjálfarar segja frá uppvaxtarárum og karakter strákanna. Við fengum frábærar móttökur við gerð þáttanna, allir voru tilbúnir til að hjálpa okkur við að gera skemmtilegt sjónvarp og síðast en ekki síst upplýsandi. Í þessum þáttum kemur margt nýtt fram, sem til þessa hefur ekki verið nema á vitorði þeirra nánustu. Við renndum í raun og veru nokkuð blint í sjóinn, en eftir því sem líður á vinnsluna erum við sannfærðir um að þættirnir komi til með að vekja athygli,“ segja þeir félagar Skúli Bragi og Árni Rúnar.

Landsbyggðastrákarnir okkar í þáttunnum eru eftirtaldir leikmenn: 
Björn Bergmann Sigurðarsson – Akranes
Jón Daði Böðvarsson – Selfoss
Arnór Ingvi Traustason – Reykjanesbær
Samúel Kári Friðjónsson – Reykjanesbær
Aron Einar Gunnarsson – Akureyri
Birkir Bjarnason – Akureyri
Hólmar Örn Eyjólfsson – Sauðárkrókur
Alfreð Finnbogason – Grindavík

Fyrsti þátturinn verður frumsýndur fimmtudaginn 14. júní klukkan 20:30
Annar þátturinn er á dagskrá mánudaginn 18. júní klukkan 20:30
Þriðji þátturinn er á dagskrá þriðjudaginn 19. júní klukkan 20:30
Fjórði þátturinn er á dagskrá miðvikudaginn 20. júní klukkan 20:30.
 
Hólmar Örn er sonur Önnu Pálu Gísladóttur og Eyjólfs Sverrissonar sem gerði garðinn frægan í landsliði Íslands í fótbolta jafnt sem leikmaður sem þjálfari. Hólmar Örn lék sem hægri bakvörður í sigurleik Íslands gegn Gana á dögunum og þótti standa sig vel. Vonandi fáum við að sjá hann í eldlínunni í Rússlandi á komandi heimsmeistaramóti.
/PF

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir