Hópslysaæfing á Blönduósi
Fyrirhuguð er hópslysaæfing á vegum Almannavarnadeildar RLS og Sýslumannsins á Blönduósi 14. og 15. október nk. Til stóð að halda æfinguna í vor en henni frestað til haustsins vegna goss í Grímsvötnum.
-Hér er um að ræða æfingu allra viðbragðsaðila í Húnavatnssýslum. Æfingin mun byggjast á því ef stórslys verður á þjóðvegi 1, segir Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri á Blönduósi.
