Hópslysaæfing gekk vonum framar
Umfangsmikil hópslysaæfing á vegum almannavarna í Húnavatnssýslum og almannavarnardeild ríkislögreglustjóra fór fram sl. laugardag og að sögn Kristjáns Þorbjörnssonar yfirlögregluþjóns á Blönduósi tókst æfingin afar vel. Æfð voru viðbrögð og samvinna viðbragðsaðila við hópslysi og tóku allir viðbragðsaðilar í umdæminu þátt í æfingunni, um 160 manns í heildina.
Æfingin fór fram á Víðidalsvegi nr. 715 skammt frá vegamótunum, sem eru norðan brúar yfir Víðidalsá. Þar var útbúinn „slysstaður“ þar sem um 40 manns höfðu slasast í umferðarslysi.
„Allir viðbragðsaðilar komu mjög vel út úr æfingunni og má segja að verkefnið hafi gengið framar öllum vonum. Viðbragðsaðilar, innan umdæmisins, búa yfir miklum og góðum tækjakosti og mannafla sem kann afar vel til verka og má segja að æfingin eða útkoma hennar hafi verið staðfesting á þeim staðreyndum,“ sagði Kristján.