Hörður Ríkharðsson gefur kost á sér í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi
Í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi gefa fimm aðilar kost á sér um fjögur efstu sætin á framboðslista flokksins við næstu Alþingiskosningar. Guðbjartur Hannesson og Ólína Þorvarðardóttir bítast um fyrsta sætið.
Í framboði eru Hörður Ríkharðsson kennari og sveitarstjórnarmaður Blönduósi sem gefur kost á sér í 3.-4. sæti, Benedikt Bjarnason starfsmaður Fiskistofu Ísafirði einnig í 3.-4. sæti, Hlédís Sveinsdóttir sjálfstætt starfandi Akranesi í 2. sæti, Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður Ísafirði í 1.-2. sæti og Guðbjartur Hannesson alþingismaður og velferðarráðherra Akranesi í 1. sæti.
Flokksvalið verður eingöngu opið félögum Samfylkingarinnar og fer fram með póstkosningu. Kosningin hefst mánudaginn 12. nóvember og henni lýkur mánudaginn 19. nóvember. Áætlað er að birta niðurstöður flokksvalsins föstudaginn 23. nóvember.
Rétt til þátttöku í flokksvalinu hafa allir félagar í Samfylkingunni í Norðvesturkjördæmi og eru kjörgengir í kjördæminu. Hægt er að taka þátt í flokksvalinu með því að skrá sig í flokkinn á síðu Samfylkingarinnar, www.samfylking.is.