Hraðhleðslustöð ON í Víðigerði lokuð tímabundið í dag
Hraðhleðslustöðvum Orku náttúrunnar í Víðigerði verður lokað tímabundið vegna endurnýjunar á heimtaug svæðisins. Rafmagn verður tekið af hleðslustöðvunum og þeim þar með lokað tímabundið frá kl. 14 til 17 í dag, fimmtudaginn 19. nóvember. Rafmagn verður sett á aftur þegar framkvæmdum lýkur.
Við biðjum rafbílaeigendur sem eiga leið um Víðigerði á þessum tíma að gera ráð fyrir lokuninni og hafa í huga að framkvæmdir gætu dregist á langinn vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Aðrar hleðslustöðvar ON má finna á hleðslukorti ON og í ON-appinu.
hlekkur á hleðslukort ON hér - https://www.on.is/map
