Túrinn reddaðist í Dauðadal
Málmey SK 1 kom til löndunar á Sauðárkróki nú í morgun með um 103 tonna afla. Uppistaðan var þorskur, eða um um 82 tonn, og næst mest af ufsa eða um átta tonn. „Við byrjuðum í brælu og engum fiski vestur við Halann,” hefur tíðindakona FISK Seafood eftir Hermanni Einarssyni skipstjóra.
„Það var enginn fiskur þar svo á endanum gafst ég bara upp og sigldi norður fyrir Kolbeinsey, í Dauðadal. Þar hittum við loksins á fisk og túrinn reddaðist fyrir horn eins og gerist nú yfirleitt,” sagði Hermann.
