Hrognkelsi lengdarmæld hjá BioPol
Þann 10. mars s.l var handhöfum grásleppuleyfa heimilt að leggja net sín víðast hvar um landið. Ekki er þó líklegt að margir hafi farið af stað til að leggja þar sem veðurlag hefur ekki verið hagstætt til sjóferða.
Á heimasíðu BioPol á Skagaströnd segir að þar á bæ hefur starfsfólk, líkt og grásleppusjómenn, að undanförnu verið að undirbúa sig fyrir komandi grásleppuvertíð en í ár er áætlað að framkvæma umfangsmiklar lengdarmælingar á hrognkelsum ásamt því að merkja um 2.000 fiska. Lögð verður áhersla á að framkvæma merkingar sem mest í lok vertíðar til þess að auka líkur á endurheimtum á milli ára.
Á undanförnum þremur árum hafa verið merkt rúmlega 7.500 hrognkelsi í einstaklega góðu samstarfi við grásleppsjómenn vítt og breytt um landið. Endurheimtur hafa verið nokkuð góðar innan vertíða en frekar fáar á milli ára.
/BioPol.is