Hrossablót á Hótel Varmahlíð

Næstkomandi laugardagskvöld, þann 13. október, verður haldið Hrossablót á Hótel Varmahlíð. Um er að ræða glæsilega veislu þar sem hrossið verður í aðalhlutverki, bæði á matseðli og í skemmtidagskrá, segir í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónhornsins.

Meistarakokkurinn Þórhildur María töfrar fram kræsingar að venju ásamt Hauki G. Gröndal matreiðslumanni. Veislustjóri kvöldsins verður Ólafur Atli Sindrason og ræðumaður Atli Gunnar Arnórsson. Tónlistarfólkið Kristjana Arngríms og Kristján Hjartarson frá Tjörn í Svarfaðardal skemmta.

Blótið hefst með fordrykk kl. 19:30 og verð er 6.900 kr.

Einnig er boðið upp á gistitilboð fyrir veislugesti á Hótel Varmahlíð, tveggja manna herbergi með morgunverði á 10.000 kr. Borðapantanir fara fram í gegnum netfangið: info@hotevarmahlid.is eða í síma 453 8170.

Fleiri fréttir