Hryssa í óskilum
Húnavatnshreppur hefur auglýst hryssu í óskilum en um er að ræða móvindskjótta þriggja vetra hryssu sem fannst á Litlu-Giljá um miðjan des. 2012. Hryssan er ómörkuð og auðkennalaus.
„Sá sem sannað getur eignaréttsinn á hryssunni fyrir 18. janúar 2013 fær hana afhenta af fulltrúa Húnavatnshrepps gegn greiðslu áfallins kostnaðar,“ segir í auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans.
Ef enginn vitjar hryssunnar verður hún seld á opinberu uppboði af Sýslumanni Húnvetninga að Litlu-Giljá föstudaginn 18. janúar 2013 kl. 15.00