HSB komin á Facebook

Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi hefur stofnað samskiptasíðu á Facebook en samkvæmt heimasíðu HSB er þessari síðu fyrst og fremst ætlað að vera tilkynninga og upplýsingamiðill.

„Með notkun þessa miðils munu upplýsingar komast á rauntíma til áskrifenda. Einnig hvetjum við til þess að notendur þjónustu HSB láti okkur vita af því sem betur má fara auk þess við þiggjum einnig hrós,“ segir á heimasíðunni.

Þá er fólk einnig hvatt til að gera „like“ á samskiptasíðuna sem og að gera hana að ánægjuefni en þess er getið að síðan er ekki fullsköpuð í dag en verður þróuð áfram næstu daga.

Fleiri fréttir