Huggulegt haust um helgina
Söguleg safnahelgi á Norðurlandi vestra verður haldin um næstu helgi, 13. – 14. október, en þá munu nærri 30 söfn og setur bjóða upp á sérstaka dagskrá, sýningu eða viðburð allt eftir eðli staðarins, frá Borðeyri í vestri til Hofsóss í austri.
Opið er kl. 12:00–18:00 báða dagana. Nánari upplýsingar um dagskrá og fleira er að finna á www.huggulegthaust.is. Ef heimsótt eru 4 söfn eða fleiri er hægt að vinna glæsilegan vinning.
Boðið verður upp á fríar rútuferðir en brottför verður kl. 13 frá eftirfarandi stöðum en einnig má sjá nánar um viðkomustaðina hér að neðan.
Blönduós
- Kvennaskólinn kl. 13:00
- Skagaströnd kl. 13:20
- Rannsóknarsetur HÍ á NV. kl. 13:20-14:20
- Spákonuhof/Nes/Árnes kl. 14:20-15:00
- Laxasetur Íslands kl. 15:20
- Eyvindarstofa
- Hafíssetur
- Kvennaskóli kl. 15:30
- Þingeyrar kl. 15:50-16:40
- Hafíssetur kl. 17:00
- Kvennaskóli
- Eyvindarstofa
- Laxasetur Íslands kl. 17:20
- Skagaströnd kl. 17:40
- Blönduós kl. 18:00
Hvammstangi
- Bardúsa kl. 13:00
- Laugarbakki kl. 13:10-14:00
- Reykir kl. 14:10-15:00
- Borðeyri kl. 15:15-16:00
- Reykir kl. 16:15
- Laugarbakki kl. 16:25
- Hvammstangi kl. 16:35 -17:20
- Laugarbakki kl. 17:30
- Hvammstangi kl. 17:40
Sauðárkrókur
- Gestastofa Sútarans kl. 13:00
- Minjahúsið á Sauðárkróki kl. 13:05-13:30
- Kakalaskáli kl. 14:00-14:50
- Hólar kl. 15:20-16:10
- Stóragerði kl. 16:20-17:10
- Hofsós kl. 17:20-18:00
- Sauðárkrókur kl.18:30
Skagaströnd
- Spákonuhof kl. 13:00
- Laxasetur Íslands kl. 13:20-13:50
- Eyvindarstofa kl. 13:50 - 14:20
- Hafíssetur kl. 14:25- 15:00
- Kvennaskóli kl. 15:05 - 16:00
- Spákonuhof kl. 16:20
Söguleg safnahelgi er styrkt af Menningarráði og Vaxtarsamningi Norðurlands vestra.