Húnabjörg sækir aflvana bát
Björgunarskipið Húnabjörg frá Skagaströnd fór fyrr í dag að sækja vélarvana bát sem staddur var skammt frá Óðinsboða. Ekkert amar að áhöfn bátsins, sem er 23 tonna stálbátur. Reiknað er með að draga þurfi bátinn í land og er búist við að skipin verði komin til hafnar í kringum miðnætti enda er leiðin löng, eða um 50 sjómílur frá Skagaströnd.
Veður er nú þokkalegt á svæðinu,suðvestan 10-11 m/s og sjólítið.
/Landsbjörg.is