Húnabjörg sækir vélarvana bát

Björgunarsveitin Strönd barst beiðni um aðstoð í gær og lagði björgunarskipið Húnabjörg þá af stað um kl. 14:25 að sækja vélarvana bát. Báturinn var staddur útaf Trékyllisvík á Ströndum, eða um það bil 30 sjómílur í norðvestur frá Skagaströnd. 

Samkvæmt heimasíðu sveitarinnar kom Húnabjörg til hafnar á Skagaströnd með hinn vélarvana bát rétt um kl. 19:00 eftir um fjögurra og hálfs klukkutíma túr. Veður var gott á svæðinu, austan 5-10 m/s og léttskýjað.

Fleiri fréttir