Húnabyggð ein fjögurra sem hlaut styrk

Húnabyggð.
Húnabyggð.

Á vef Innviðaráðuneytisins kemur fram að styrkbeiðni Húnabyggðar um styrk til að þróa og efla almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins með áherslu á samgöngur fyrir börn og ungmenni hafi verið ein fjögurra sem hlutu styrk Innviðaráðuneytisins vegna aðgerðar A.10 á byggðaáætlun, Almenningssamgöngur milli byggða.

Alls bárust sjö umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 74 milljónir. Að þessu sinni var 27 milljónum króna úthlutað til fjögurra verkefna.

Markmið aðgerðar A.10 er að styðja við þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja almenningssamgöngur við ýmsa sérakstursþjónustu.

Verkefnið snýst um að þróa og efla tómstundaakstur barna og ungmenna í Húnabyggð.
Í styrkbeiðni þeirra kemur m.a. fram að Húnabyggð er víðfeðmt og dreifbýlt sveitarfélag þar sem margir íbúar búa fjarri helsta þjónustukjarna. Því er aðgengi barna og ungmenna að íþrótta- og tómstundastarfi á Blönduósi oft háð því að foreldrar hafi tök á að aka þeim á íþróttaæfingar og í tómstundir. Þetta skapar ójöfn tækifæri eftir búsetu og getur hamlað virkri þátttöku barna í félagslífi. Hlaut sveitarfélagið 5 m.kr. styrk til þessa verkefnis.

Fleiri fréttir