Húnavaka 2013 verður haldin 19. - 22. júlí

Húnavaka, fjölskylduhátíð Austur-Húnvetninga, verður haldin þriðju helgina í júlí, nánar til tekið 19. - 22. júlí. Undirbúningur og framkvæmd hátíðarinnar er í höndum Markvert ehf., líkt og í fyrra.

Á heimasíðu Markvert kemur fram að dagskráin verður fjölbreytt líkt og áður og þær nýjungar sem voru í boði í fyrra eins og grillið í gamla bænum og fyrirtækjadagurinn, verða á sínum stað og bætt verulega í.

Í byrjun maí er fyrirhugað að halda fund með hagsmunaaðilum á Blönduósi þar sem farið verður yfir hugmyndir að dagskrá hátíðarinnar og aðkomu fyrirtækja og stofnana að henni.

Sem fyrr verður leitað til íbúa á svæðinu eftir hugmyndum og framlagi til dagskrár en hægt er að senda hugmyndir og fyrirspurnir á netfangið hunavaka@markvert.is, eða hafa samband við Guðnýju og Kalla hjá Markvert.

Fleiri fréttir