Húnavaka hefst á fimmtudaginn

Húnavaka, bæjarhátíð og fjölskylduskemmtun Austur-Húnvetninga, verður formlega sett fimmtudaginn 16. júlí, klukkan 18:30 fyrir framan Hafíssetrið í gamla bænum. Að lokinni setningarathöfninni verða Umhverfisverlaun Blönduósbæjar afhent, venju samkvæmt.

Um klukkan 18:40 hefst grillpartý í gamla bænum. Hver og einn kemur með mat og drykk fyrir sig og sína. Gestir eru minntir á að taka með borð og stóla. Þá eiga allir að koma með eftirrétt að eigin vali miðað við þann fjölda sem fylgir hverjum og einum á eftirréttahlaðborð sem hefst klukkan 20:00. Verðlaun verða veitt fyrir frumlegasta og flottasta eftirréttinn.

Að loknu grillpartýinu og eftirréttahlaðborðinu verður boðið upp á leiki og fjör í gamla bænum og þar mun fara fram hæfileikakeppni milli hverfa.

Kvöldið endar svo á Pub Quiz keppni um Blönduós á Hótel Blönduósi frá klukkan 22:30 til 01:00. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti. Frítt inn.

Á fimmtudaginn verða setur og söfn Blönduóss opin gestum og gangandi. Heimilisiðnaðarsafnið verður opið frá klukkan 10:00 til 17:00. Laxasetrið verður opið frá 11:00 til 17:00 og Hafíssetrið verður opið frá klukkan 13:00 til 17:00. Textílsetur Íslands og Minjastofa Kvennaskólans verða opin frá klukkan 13:00 til 17:00.

Klukkan 16:00 þennan fimmtudag fer fram fjölskyldusýning Sirkus Íslands á túninu við Kvennaskólann.

Dagskrá Húnavöku er að finna hér, en hún stendur fram á sunnudaginn 19. júlí.

Fleiri fréttir