Húnavaka nálgast eins og óð fluga

 Já það styttist í Húnavöku sem haldin verður dagana 15. júlí til 17. júlí. Eins og ávallt verður þar margt skemmtilegt í boði  fyrir Blönduósinga, nærsveitarmenn og aðra sem leið eiga um Blönduós þessa daga. Nú hefur verið settur upp árlegur borði við þjóðveginn og þar gefur að kynna hverjir munu skemmta á Húnavöku.

Þar munu m.a. mæta Björgvin Frans og félagar, Ingó og Veðurguðirnir, Töframaðurinn Bjarni, Hjalti Jóns, Lára Sóley, Óskar Pétursson og hljómsveit og Hundur í óskilum. Húnavaka er fjölskylduskemmtun með fjölbreyttum skemmtiatriðum, kvöldvöku, dansleik og miklu miklu  meira.

Heimild; Huni.is

Fleiri fréttir