Húnavakan byrjar í dag

Á laugardaginn verður golfmót, Blönduhlaup, söngkeppnin Míkró húnninn, markaðir, litbolti, hoppu kastalar, vatnaboltar, listflug, listsýningar, heimsmeistaramót í Lomber, súpukeppni, fótboltakeppni, kvikmyndasýning og margt fleira.
Um kvöldið verður hin vinsæla kvöldvaka í Fagrahvammi þar sem Ari Eldjárn skemmtir, fjöldasöngur, kassagítarleikur og varðeldur. Kvöldinu lýkur með stórdansleik í félagsheimilinu með Hvannadalsbræðrum.
Á lokadegi hátíðarinnar verður margt um að vera á söfnum og setrum bæjarins. Það verður opið hús í Heilbrigðisstofnuninni, söguganga um gamla bæinn og margt fleira. Húni.is segir frá þessu.
Dagskrá Húnavöku í heild sinni má sjá hér.