Húnavakan nálgast

Húnavaka, menningarhátíð Austur-Húnvetninga, verður haldin helgina 19.-21. júlí næstkomandi. Húnvetningar hafa áratugum saman haldið Húnavöku en hún var hér á árum áður haldin á útmánuðum og því tengd árstíðaskiptunum. Húnavakan, sem þá stóð yfir í viku, ávann sér fastan sess í hugum Húnvetninga og annarra sem mjög vel heppnuð hátíð og margir gestir úr nærliggjandi héruðum komu til að njóta hennar með heimamönnum.

Dansleikir voru mörg kvöld vikunnar, ásamt leiksýningum og allskonar uppákomum. Sjónleikir, kvikmyndasýningar, skemmtiþættir, hagyrðingakvöld, myndlistasýningar, mælskukeppni, spurningaþættir og fleira gladdi húnvetnsk hjörtu hér á árum áður. Mikill metnaður var lagður í viðburðina og hafði undirbúningur fyrir suma viðburði staðið yfir allan veturinn. Segja má að Húnavakan hafi verið menningaruppskeruhátíð heimamanna þar sem veturinn var kvaddur og sumrinu fagnað.

Frá Húnavöku 2009. Myndir: Huni.is

En tímarnir breytast og mennirnir með. Húnavaka eins og hún var hér á árum áður varð barn síns tíma og með tilkomu annarrar afþreyingar eins og sjónvarps, myndbandstækja og tölva og aukins framboðs af skemmtunum og viðburðum sem haldnir eru allt árið um kring lagðist Húnavakan af um tíma. En sem betur fer tókst að koma henni aftur af stað fyrir nokkrum árum síðan, nú á öðrum tíma og í öðrum búningi, í takt við nýja tíma.

Nú styttist í enn eina Húnavökuna en hún verður haldin dagana 19.-21. júlí næstkomandi. Von er á glæsilegri dagskrá og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Allir geta farið að hlakka til. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir