Húnavallaskóli í iðnkynningu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
04.02.2014
kl. 11.37
Í nokkur ár hefur FNV boðið elstu nemendum grunnskólanna á Norðurlandi vestra upp á helgarnám í iðnkynningu. Námið fer þannig fram að nemendur mæta tvær helgar yfir veturinn og fá innsýn í mismunandi iðnnám sem í boði er við skólann.
Námið er síðan metið sem valgrein í grunnskólunum. Nemendur fá einnig gistingu á heimavist FNV og kynnast því heimavistarlífinu af eigin raun. Um síðstu helgi voru nemendur úr 9. og 10. bekk Húnavallaskóla í iðnkynningu og höfðu bæði gagn og gaman af.