Húnavatnshreppur býður íbúum á myndlistarnámskeið
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
21.03.2015
kl. 20.57
Dagana 25.-27. mars næstkomandi verður haldið námskeið í Húnavallaskóla sem ber yfirskriftina sköpun-hugmyndir-þróun-handavinna og myndverk. Það er Guðjón Sigvaldason, kallaður Gjess, sem mun kenna á námskeiðinu.
Námskeiðin verður haldið í Húnavallaskóla og stendur frá kl. 20-22:30 öll kvöldin. Þátttaka í námskeiðinu er ókeypis fyrir íbúa Húnavatnshrepps og geta áhugasamir snúið sér til sveitarstjóra eða sent honum tölvupóst á netfangið einar@húnavatnshreppur.is eða hringt í síma 452 4661.