Húnavatnshreppur fellur frá hækkunum
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps hefur ákveðið að falla frá fyrirhuguðum gjaldskrárhækkunum á sorpgjöldum og leikskólagjöldum. Forseti ASÍ hefur skrifað bæjar- og sveitarstjórnum bréf þar sem hann skorar á sveitarfélögin að halda aftur af gjaldskrárhækkunum.
Í bréfinu segir forseti ASÍ m.a.:
„Fyrir hönd íslensks launafólks vil ég skora á þig og samverkamenn þína í stjórn sveitarfélagsins að hækka engar gjaldskrár fyrir þjónustu eða hjá fyrirtækjum sveitarfélagsins. Hafi það verið gert hvet ég ykkur til að endurskoða þá ákvörðun og draga umræddar hækkanir til baka nú þegar.“
Húnavatnshreppur hefur nú brugðist við þessu bréfið og ákveðið að falla frá fyrirhuguðum gjaldskrárhækkunum á sorpgjöldum og leikskólagjöldum eins og áður sagði. Húni.is segir frá þessu.