Húnavatnshreppur skorar á stjórnvöld

Í lok aprílmánaðar var haldinn sveitarfundur íbúa Húnavatnshrepps. Fundurinn var fjölmennur og á honum voru eftirfarandi áskorandir til stjórnvalda samþykktar samhljóða.

Sveitarfundur íbúa Húnavatnshrepps, haldinn 29. apríl 2015, skorar á stjórnvöld:

  • að stórauka framlag til viðhalds vega og flýta því sem kostur er að á þá verði lagt bundið slitlag.
  • að tryggja að fjarskiptaáætlun sé framfylgt.
  • að standa vörð um uppbyggingu á landbúnaði, ferðaþjónustu og aðra atvinnustarfssemi.
  • að hafa í huga við gerð nýrra búvörusamninga að áframhaldandi öflugur stuðningur við sauðfjár og nautgriparækt er jafnframt skilvirkasta leið stjórnvalda til að viðhalda byggð á hefðbundnum landbúnaðarsvæðum eins og Húnavatnshreppi.
  • að beita sér fyrir fjölgun opinbera starfa og nýjum atvinnutækifærum á svæðinu.
  • að tryggja að orka frá Blönduvirkjun verði nýtt á svæðinu og að íbúum verði tryggður aðgangur að þriggja fasa rafmagni.

Frá þessu er sagt á heimasíðu sveitarfélagsins, þar sem einnig er að finna greinargerðir varðandi áskoranirnar.

Fleiri fréttir