Húnaver fær nýja glugga og fasteignaviðskipti Húnavatnshrepps

Hreppsnefnd Húnavatnshrepps barst þrenn tilboð vegna gluggasmíði í suður og vesturhlið Húnavers. Tilboðin voru frá Berki hf., Byko og Gluggasmiðjunni en Hreppsnefndin ákvað að taka tilboði frá Berki og Gluggasmiðjunni en þau tilboð voru mjög svipuð í verði og gæðum. Jafnframt henta þau húsinu betur útlitslega séð, segir í fundargerð 116. fundar hreppsnefndar sem haldinn var þann 15. febrúar sl.

Upphæð tilboðsins frá Berki hf. hljóðaði uppá kr. 1.768.872 kr. og í því tilboði er gert ráð fyrir afhendingu í Húnaveri. Tilboðið frá Byko var uppá 1.548.280 kr. en í tilboði Byko er gert ráð fyrir afhendingu í Reykjavík. Í fundargerð 116. fundar segir að samkvæmt athugun megi gera ráð fyrir að flutningskostnaður frá Reykjavík sé um 300 þús. kr. Tilboð Gluggasmiðjunnar hljóðaði uppá 1.698.082 kr. en í því tilboði er gert ráð fyrir 175 þús. kr. flutningskostnaði.

Fasteignaviðskipti Húnavatnshrepps

Á 116. fundi Hreppsnefndar var einnig samþykkt að ganga að kaupum á eignarhlut ríkisins og fasteignum á Reykjum með fyrirvara um fjármögnun. Um er að ræða fimm íbúðir og skólastjórabústað á Húnavöllum og einbýlishúsi og bílskúr á Steinholti.

Ráðuneytið féllst á að söluverð taki mið af fasteignamati eignanna eins og það var 2011, en þá var eignarhlutur ríkisins kr. 24.237.000.- miðað við staðgreiðslu. Ríkiskaup var falið afgreiðla málsins og Fasteignir Húnavatnshrepps ehf, sem er í 100% eigu sveitarfélagsins, stendur að kaupunum.

Hreppsnefnd samþykkti kaup á eigninni Skúlabraut 22 á Blönduósi fyrir sambýli fatlaðra en Félags- og skólaþjónusta A-Hún samdi við Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs um kaupin og leitaði eftir samþykki sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga á kaupunum og þeirri skuldbindingu sem fellst í samþykkt skuldabréfs vegna kaupanna.

Fyrir fundinum lá kaupsamningur vegna eignarinnar og skuldabréf að jafnvirði kaupverðs 14,5 millj. kr. Sveitarstjórn samþykkti kaupsamninginn og skuldabréfið fyrir sitt leyti og veitti stjórn Félags- og skólaþjónustu umboð sitt til að ganga frá kaupum á eigninni með undirritun þeirra skjala sem varða kaupin,“ segir í fundargerð.

 

Fleiri fréttir